Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 15. október 2018 21:39
Sverrir Örn Einarsson
Birkir Bjarna: Ættum að vera ánægðir með frammistöðuna
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Bara svekkjandi. Við vorum með fínan leik fram að mörkunum en það var svona 10 mínútna kafli þar sem við duttum aðeins niður og fengum þessi mörk á okkur og þá er þetta orðið erfitt í lokinn og við að reyna sækja mark.“

Sagði Birkir Bjarnason um fyrstu viðbrögð sín eftir 1-2 tap Íslands gegn Sviss í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  2 Sviss

Svisslendingar komust yfr á 52. mínútu leiksins og 15 mínútum síðar tvöfölduðu þeir forrystu sína. Hvað fannst Birki klikka í mörkunum?

„Það er erfitt að segja. Við verðum bara að kíkja á leikinn aftur og sjá hvað gerist,náttúrulega mjög svekkjandi að tapa þessum leik þegar við ætluðum að ná í stig svo þetta er eitthvað sem við þurfum að kíkja á. “

Íslenska liðinu hljóp kapp í kinn eftir að Alfreð Finnbogason minnkaði munin með frábæru marki utan af velli. Í kjölfar marksins jókst ákafi og kraftur íslenska til mikilla muna sem verður að teljast jákvætt upp á framhaldið.

„Já við erum búnir að vera spila mjög vel núna síðustu tvo leiki sérstaklega ef við horfum á síðustu tvo leiki þar á undan. Við ættum svo sem að vera bara ánægðir með frammistöðuna en mjög svekktir með úrslitin.“

Sagði Birkir Bjarnason en nánar er rætt við hann í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner