Ísland tapaði 2-1 fyrir Sviss í Þjóðardeild UEFA á Laugardalsvelli í kvöld en liðið var grátlega nálægt því að jafna leikinn.
Hér má sjá einkunnagjöf kvöldsins.
Hér má sjá einkunnagjöf kvöldsins.
Hannes Þór Halldórsson 6
Hannes átti fínan leik, varði vel á köflum og gat lítið gert í mörkunum sem hann fékk á sig.
Hólmar Örn Eyjólfsson 5
Var í smá basli í leiknum.
Ragnar Sigurðsson 6
Var besti maðurinn í vörninni í dag.
Kári Árnason 6
Kári og Raggi voru fínir í leiknum í dag, gerðu fá mistök.
Hörður Björgvin Magnússon 4
Hörður var alls ekki að eiga góðan dag, var áhorfandi í öðru marki Sviss.
Rúnar Már Sigurjónsson 6
Rúnar er að finna sig vel með landsliðinu, gerði lítið sóknarlega en stóð sig vel varnarlega.
Birkir Bjarnason 7
Birkir var besti maður vallarins fyrri hluta leiks og var að vinna einvígin á miðjunni, er að finna sig vel í þeirri stöðu.
Gylfi Þór Sigurðsson 7
Gylfi var að venju góður í dag og var óheppinn að skora ekki í fyrri hálfleik þegar Mvogo varði mjög vel frá honum.
Jóhann Berg Guðmundsson 6
Skilaði sínu í kvöld.
Arnór Ingvi Traustason 4
Kom lítið úr honum í kvöld og var skipt útaf eftir annað mark Sviss.
Alfreð Finnbogason 8 - Maður leiksins
Alfreð elskar að skora mörk og markið hans í kvöld var rándýrt!
Varamenn:
Rúrik Gíslason 6
Rúrik kom með líf inn í leikinn, átti fína spretti og var nálægt því að jafna leikinn með skoti rétt framhjá.
Albert Guðmundsson spilaði ekki nóg til að fá einkunn.
Athugasemdir