Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 15. október 2018 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mane bætist á meiðslalista Liverpool - Puttabrotinn
Mynd: Getty Images
Sadio Mane gæti misst af næsta leik Liverpool eftir að hafa brotið þumalputta sinn á vinstri hendi.

Talið er að Mane hafi orðið fyrir meiðslunum á æfingu hjá Senegal.

Meiðslin eru ekki talin það alvarleg en hann missir væntanlega af leik Liverpool gegn Huddersfield á laugardag.

Þetta landsleikjahlé hefur ekki verið gott fyrir Liverpool en þrír leikmenn Liverpool hafa þurft að draga sig frá landsliðsverkefnum vegna meiðsla. Mohamed Salah er tæpur fyrir leikinn gegn Huddersfield og sömu sögu er að segja af James Milner sem meiddist gegn Manchester City í síðasta leik í ensku úrvalsdeildinni.

Virgil van Dijk þurfti að draga sig úr hollenska landsliðshópnum en hann ætti að vera klár gegn Huddersfield. Ronald Koeman, landsliðsþjálfari Hollands, hefur greint frá þessu.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner