Scott McTominay, 21 árs miðjumaður Manchester United, gæti verið lánaður í janúarglugganum.
McTominay hefur ekki náð sér á strik í byrjun tímabils og Jose Mourinho gagnrýndi hann opinberlega eftir 3-2 sigurinn gegn Newcastle.
McTominay var tekinn af velli í hálfleik í umræddum leik.
McTominay hefur ekki náð sér á strik í byrjun tímabils og Jose Mourinho gagnrýndi hann opinberlega eftir 3-2 sigurinn gegn Newcastle.
McTominay var tekinn af velli í hálfleik í umræddum leik.
Lán gæti hentað öllum aðilum en Aston Villa og Leeds United sýndu leikmanninum unga áhuga í sumar.
The Sun segir að Mourinho sé að velta því fyrir sér að lána McTominay.
Manchester United mætir Chelsea um helgina en óvíst er hvort McTominay verði í leikmannahópnum. Hann fékk högg í landsliðsverkefni með Skotlandi og er tæpur.
Athugasemdir