Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
banner
   mán 15. október 2018 21:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar Már pirraður: Drulluleiðinlegt að tapa leikjum
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Þetta er hrikalega svekkjandi að ná ekki að jafna í lokin en það var partur í leiknum í dag þar sem við vorum ekki nógu góðir. Gott lið eins og Sviss refsar okkur," sagði Rúnar Már Sigurjónsson, miðjumaður íslenska landsliðsins, eftir tap gegn Sviss í Þjóðadeildinni á Laugardalsvelli í kvöld.

Tapið þýðir það að Ísland er fallið úr A-deild Þjóðadeildarinnar.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  2 Sviss

„Eftir á að hyggja, svona fljótt eftir leikinn, þá var fyrsta korterið í báðum hálfleikjum ekki gott. Þeir ná að opna okkur og teyma okkur út úr stöðum, það má ekki gera á móti þeim."

„Ég er ánægður að við skulum vera að bæta okkur en það er drulluleiðinlegt að tapa leikjum. Sú er tilfinningin strax eftir þennan leik."

Rúnar Már er farinn að spila meira eftir að Erik Hamren tók við. „Það er frábært að fá að spila, það er gott að fá traust. Eftir svona svekkjandi tap er ég samt lítið að pæla í því, ég er pirraður að tapa þessu."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner