Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 15. október 2018 17:38
Elvar Geir Magnússon
Samúel Kári ólíkur sjálfum sér á mynd UEFA
Icelandair
Mynd: UEFA
U21-landsliðsmaðurinn Samúel Kári Friðjónsson var kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Sviss þar sem meiðsli herja á hópinn.

Heimasíða UEFA á greinilega ekki mynd af leikmanninum unga en þar á bæ deyja menn ekki ráðalausir og birtu bara mynd af einhverjum allt öðrum.

Samúel er meðal varamanna gegn Sviss í kvöld en með því að smella hérna má fara í beina textalýsingu frá leiknum.

Samúel er 22 ára Keflvíkingur sem spilar með Valerenga en hér að neðan má sjá raunverulega mynd af honum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner