Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 15. október 2018 17:15
Elvar Geir Magnússon
Shaw kominn langt í samningaviðræðum
Luke Shaw og Jose Mourinho.
Luke Shaw og Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Guardian segir að Luke Shaw sé kominn vel á veg í viðræðum við Manchester United um nýjan og endurbættan samning.

Shaw er tilbúinn að framlengja við United eftir að hafa spilað vel með liðinu á tímabilinu.

Saw er 23 ára og kom frá Southampton sumarið 2014. Hann er með 100 þúsund pund í vikulaun en mun fá umtalsverða launahækkun.

Núgildandi samningur Shaw rennur út í sumar en hann hefur að margra mati verið besti leikmaður United á tímabilinu.

United er í áttunda sæti ensku deildarinnar en liðið mætir Chelsea í hádeginu á laugardag.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner