Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 15. október 2018 14:00
Elvar Geir Magnússon
Þjálfari Slóvaka sagði upp
Mynd: Getty Images
Hinn 64 ára gamli Jan Kozak skilaði inn uppsagnarbréfi til knattspyrnusambands Slóvakíu eftir 2-1 tap gegn Tékklandi.

Kozak hefur verið landsliðsþjálfari Slóvakíu síðan 2013 en hann kom liðinu á EM í Frakklandi 2016.

Slóvakar eru á botni síns riðils í B-deild Þjóðadeildarinnar.

Stefan Tarkovic, aðstoðarmaður hans, mun stýra Slóvakíu í vináttulandsleik gegn Svíþjóð sem fram fer í Stokkhólmi í vikunni.
Athugasemdir
banner
banner