Elli Eiríks dæmir viðureign botnliðanna

Erlendur Eiríksson er reyndasti dómari landsins.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Guðgeir Einarsson dæmir sinn fyrsta leik í efstu deild.

Mynd: Raggi Óla

25. umferð Bestu deildarinnar verður leikin um helgina. Það verður 'Lífsbaráttulaugardagur' í dag en þrjú neðstu lið Bestu deildarinnar verða í eldlínunni klukkan 14.
Tvö neðstu liðin, Leiknir og ÍA, eigast við í svakalega mikilvægum leik sem Erlendur Eiríksson dæmir. Eysteinn Hrafnkelsson og Ragnar Þór Bender eru aðstoðardómarar og Elías Ingi Árnason er fjórði dómari.
Á sama tíma leika Keflavík og FH suður með sjó en Einar Ingi Jóhannsson dæmir þann leik.
Í dag verða einnig tveir leikir í efri hlutanum. Víkingur og KA mætast klukkan 17 og klukkan 19:15 leika nýkrýndir Íslandsmeistarar Breiðabliks gegn KR í Kópavogi.
Hér má sjá hverjir dæma leiki helgarinnar en Guðgeir Einarsson dæmir leik Vals og Stjörnunnar. Það er hans fyrsti leikur í efstu deild.

laugardagur 15. október
Besta-deild karla - Efri hluti
17:00 Víkingur R.-KA (Vilhjálmur Alvar Þórarinsson)
19:15 Breiðablik-KR (Ívar Orri Kristjánsson)
Besta-deild karla - Neðri hluti
14:00 Leiknir R.-ÍA (Erlendur Eiríksson)
14:00 Keflavík-FH (Einar Ingi Jóhannsson)
sunnudagur 16. október
Besta-deild karla - Efri hluti
19:15 Valur-Stjarnan (Guðgeir Einarsson)
Besta-deild karla - Neðri hluti
17:00 Fram-ÍBV (Helgi Mikael Jónasson)