fim 15. nóvember 2018 12:00
Arnar Helgi Magnússon
Bayern að landa Ramsey?
Mynd: Getty Images
Bayern Munchen er ansi líklegur sem næsti áfangastaður Aaron Ramsey ef að marka má breska fjölmiðla.

Samningur Ramsey við Arsenal rennur út eftir tímabilið og þykir nánast öruggt að hann leiti á önnur mið.

Félög á borð við Juventus, Manchester United, Liverpool og Chelsea hafa öll verið nefnd til sögunnar en nú er Bayern Munchen talið líklegast.

Hann hefur þó glímt við erfið meiðsli á ferlinum en þrátt fyrir það hefur honum tekist að spila yfir 300 leiki á tíu árum sínum hjá Arsenal en þetta virðist vera síðasta tímabilið hans.

Fjölmiðlar halda því fram að viðræður á milli Ramsey og Bayern hafa nú þegar átt sér stað.

Ef að þessi félagsskipti myndu ganga í gegn myndi Ramsey þó aldrei spila með Bayern fyrr en á næsta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner
banner