„Ég er stundum kallaður Belgíu Gummi. Ég bjó hérna í fjögur ár og Belgía er geggjað land," sagði Guðmundur Benediktsson léttur í bragði við Fótbolta.net í Belgíu í dag.
Guðmundur lýsir leik Belgíu og Íslands í beinni á Stöð 2 Sport klukkan 19:45 í kvöld.
Guðmundur lýsir leik Belgíu og Íslands í beinni á Stöð 2 Sport klukkan 19:45 í kvöld.
„Ég er spenntur og líka aðeins áhyggjufullur. Það bíður okkur gríðarlega erfitt verkefni og við þurfum að eiga okkar besta leik til að ná í góð úrslit."
„Ég sé þetta þannig að við verðum nánast ekkert með boltann. Ég held að Belgar muni stjórna þessu nokkurnveginn frá upphafi til enda og þetta snýst aðallega um hvernig við náum að verjast sem lið. Ég held að uppleggið á æfingum í þessari viku hafi verið hvernig á að verjast gegn Belgunum."
Tíu leikmenn eru á meiðslalistanum hjá íslenska landsliðinu og fróðlegt verður að sjá byrjunarliðið á eftir.
„Ég held að það séu allir mjög spenntir að sjá byrjunarliðið. Við vorum nánast alltaf með sama byrjunarliðið en núna verður athyglisvert að sjá hvað við fáum. Ég hugsa að það hafi verið höfuðverkur fyrir þjáfarana að finna menn í liðið."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir