fim 15. nóvember 2018 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Salvio að semja við Inter?
Eduardo Salvio er að öllum líkindum á leið til Inter
Eduardo Salvio er að öllum líkindum á leið til Inter
Mynd: Getty Images
Ítalska stórliðið Inter virðist vera að tryggja sér þjónustu Eduardo Salvio en umboðsmaður leikmannsins hefur gefið það sterklega í skyn undanfarna daga.

Salvio, sem er 28 ára gamall Argentínumaður, hefur spilað fyrir Benfica frá árinu 2010. Hann kom þá frá Atlético Madrid og þótti einn mest spennandi leikmaður heims á þeim tíma.

Augustin Jimenez, umboðsmaður Salvio, hefur verið að birta myndir á Instagram af höfuðstöðvum Inter og gefur það sterklega til kynna að Salvio sé á leið þangað.

Hann verður samningslaus næsta sumar og getur því hafið viðræður við önnur lið í janúar.

Salvio á ellefu landsleiki með argentínska landsliðinu og hefur verið fastamaður í hópnum síðustu tvö ár.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner