Fotbolti.net
15.11.19 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Redknapp: Risa áfall ef Tottenham fer ekki í Meistaradeildina

Redknapp: Risa áfall ef Tottenham fer ekki í Meistaradeildina
Canon

Mynd: Getty Images

Harry Redknapp, fyrrum stjóri Tottenham, segir að það yrði risa áfall fyrir félagið ef það nær ekki sæti í Meistaradeildinni.

Tottenham er í 12. sæti í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur einungis unnið þrjá leiki á tímabilinu og er tólf stigum frá Meistaradeildarsætinu.
„Þetta er skrýtið. Þú getur lent í kafla þar sem hlutirnir ganga ekki upp en ég hélt virkilega að þeir myndu berjast við Liverpool og Manchester City um titilinn á þessu tímabili," sagði Redknapp.

„Í augnablikinu virðast þeir ætla að lenda í vandræðum með að ná inn í topp fjóra."

„Það væri risa áfall ef þeir ná ekki Meistaradeildarsæti eftir peningana sem þeir hafa lagt í æfingasvæðið og nýja leikvanginn. Allt annað en Meistaradeildarsæti væri lélegt tímabil."

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.