Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. nóvember 2022 10:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Bale þaggar niður fréttir um meiðsli
Gareth Bale.
Gareth Bale.
Mynd: EPA
Gareth Bale, besti leikmaður Wales, kveðst vera 100 prósent heill fyrir fyrsta leik á HM.

Wales mætir Bandaríkjunum þann 21. nóvember í fyrsta leik sínum í Katar. Verður það fyrsti leikur Wales á HM síðan 1958.

Bale er fyrirliði liðsins og klárlega þeirra mikilvægasti maður. Það hafa verið fréttir um það í aðdraganda mótsins að hann sé að glíma við meiðsli en hann segir svo ekki vera.

„Ég er 100 prósent og klár í að spila," sagði Bale við fréttamenn áður en liðið flaug til Katar.

„Það eru engin vandamál. Ef ég þarf að spila þrjá 90 mínútna leiki þá mun ég gera það. Ég er vonast til þess að sleppa við meiðsli svo ég nái að spila á mótinu."

Hinn 33 ára gamli Bale kemur sjóðheitur inn í mótið eftir að hafa tryggt Los Angeles FC sigur í bandarísku deildinni.
Athugasemdir
banner
banner
banner