Benedikt Daríus Garðarsson hefur skrifað undir nýjan samning við Fylki en hann gildir til sumarsins 2025.
Benedikt er 23 ára en hann varð þriðji markahæsti leikmaður Lengjudeildarinnar í sumar þegar Fylkir tryggði sér sæti í Bestu deildinni. Hann skoraði 14 mörk í 22 leikjum í deildinni.
Hann er uppalinn í Fjölni en gekk til liðs við Fylki árið 2016. Hann lék sína fyrstu leiki í deildakeppni fyrir félagið síðastliðið sumar. Hann hafði leikið með Elliða síðustu þrjú ár.
„Þetta eru frábær tíðindi fyrir okkur Fylkismenn ! Til hamingju með nýja samninginn Benni." Segir í tilkynningunni frá Fylki.
Athugasemdir