Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 15. nóvember 2022 22:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ronaldo lýsir erfiðasta augnabliki ævi sinnar - „Glaður og sorgmæddur"
Ronaldo og Georgina Rodriguez
Ronaldo og Georgina Rodriguez
Mynd: EPA

Piers Morgan birti nú í kvöld brot úr viðtalinu hans við Cristiano Ronaldo þar sem hann spyr portúgalska landsliðsmanninn út í andlát sonar síns.


Ronaldo og kærasta hans, Georgina Rodriguez eignuðust tvíbura í apríl á þessu ári, strák og stelpu en sonurinn lést við fæðingu.

„Erfiðasta augnablik í lífi mínu síðan pabbi lést. Ég eignaðist barn sem ég bjóst við að yrði eðlilegt. Þetta var erfitt því við skildum ekki af hverju þetta þurfti að koma fyrir okkur. Fótboltinn hélt áfram, margar keppnir í gangi, þetta var erfitt fyrir alla fjölskylduna, sérstaklega fyrir Geo [Georgina Rodríguez kærasta Ronaldo]," sagði Ronaldo.

Þetta var, eins og gefur að skilja, erfiður tími fyrir Ronaldo sem var að syrgja son sinn á meðan hann fagnaði fæðingu dóttur sinnar.

„Þetta er klikkað, ég hef reynt að útskýra þetta fyrir fjölskyldunni og vinum. Mér hefur aldrei liðið svona, að vera glaður og sorgmæddur á sama tíma, maður veit ekki hvort maður eigi að hlægja eða gráta, maður veit ekkert hvað maður á að gera."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner