Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 15. nóvember 2022 21:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Sky: Rooney undrandi á ummælum Ronaldo
Mynd: Getty Images

Wayne Rooney er undrandi á ummælum Cristiano Ronaldo í viðtalinu víðfræga við Piers Morgan.


Ronaldo er ekki ánægður með fyrrum liðsfélaga sína, Gary Neville og Wayne Rooney, en þeir hafa gagnrýnt hann á þessari leiktíð. Rooney gagnrýndi hann fyrir að ganga til búningsherbergja í leik gegn Tottenham á þessari leiktíð áður en leiknum lauk.

Ronaldo svaraði því fullum hálsi í viðtalinu.

„Þeir verða að hlusta á mína hlið líka. Það er auðvelt að gagnrýna ef þú veist ekki alla söguna. Þeir eru ekki vinir mínir," sagði Ronaldo.

Samkvæmt heimildum Sky Sports segir Rooney að Ronaldo þurfi að átta sig á því að ferillinn hans fer að síga á seinni hlutann. Rooney segir einnig að það sé enginn fjandskapur milli þeirra frá sér litið.


Athugasemdir
banner
banner