Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   lau 15. desember 2018 11:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Byrjunarlið Man City og Everton: Endurkoma De Bruyne
Gylfi auðvitað á sínum stað
Gylfi er í byrjunarliði Everton.
Gylfi er í byrjunarliði Everton.
Mynd: Getty Images
Það er alvöru hádegisleikur í enska boltanum á þessum laugardegi. Englandsmeistararnir í Manchester City fá Everton í heimsókn.

Gylfi Þór Sigurðsson er á sínum stað hjá Everton eftir að hafa átt erfiðan leik gegn Watford síðastliðinn mánudag. Gylfi kemur eflaust tvíefldur til leiks í dag.

Kevin de Bruyne er í leikmannahópi Manchester City, hann byrjar á bekknum. De Bruyne hefur verið að glíma við erfið meiðsli á tímabilinu. Hann gæti í dag spilað sinn fjórða deildarleik á leiktíðinni.

Sergio Aguero, John Stones og Raheem Sterling eru líka á bekknum, en samt nær City að stilla upp ógnarsterku liði.

City getur komist á toppinn með sigri en ef Everton tekst að vinna leikinn þá fer liðið upp fyrir Manchester United í sjötta sæti deildarinnar.

Byrjunarlið Man City: Ederson, Walker, Laporte, Otamendi, Delph, Gundogan, Bernardo Silva, Fernandinho, Sane, Mahrez, Jesus.
(Varamenn: Muric, Stones, Aguero, De Bruyne, Zinchenko, Sterling, Foden)

Byrjunarlið Everton: Pickford, Coleman, Keane, Mina, Zouma, Digne, Gomes, Bernard, Sigurdsson, Calvert-Lewin, Richarlison.
(Varamenn: Stekelenburg, Walcott, Baines, Tosun, Schneiderlin, Davies, Lookman)
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner
banner