Fotbolti.net
15.12.19 - 05:55
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Ítalska deildin

Ítalía í dag - Topplið Inter heimsækir Fiorentina

Inter er á toppnum.

Inter er á toppnum.

Canon

Mynd: Getty Images

Það verður mikið um að vera í ítölsku úrvalsdeildinni í dag, þar eru sex leikir á dagskrá.
Verona og Torino eru bæði að berjast um miðja deild, þessi lið mætast í fyrsta leik dagsins klukkan 11:30.

Klukkan 14:00 verður flautað til leiks í þremur leikjum. Juventus tekur á móti Udinese. Heimamenn í toppbaráttu en gestirnir í fallbaráttu. AC Milan er um miðja deild og þeir mæta Sassuolo sem er í 14.sæti, fimm stigum á eftir AC Milan. Bologna tekur á móti Atalanta sem er í Evrópubaráttu.

Roma fær neðsta lið deildarinnar í heimsókn klukkan 17:00, Spal er aðeins með níu stig. Í lokaleik dagsins heimsækir topplið Inter, Fiorentina, flautað verður til leiks í viðureign liðanna klukkan 19:45.

Sunnudagur 15. desember.
11:30 Verona - Torino
14:00 Juventus - Udinese (Stöð 2 Sport)
14:00 Milan - Sassuolo
14:00 Bologna - Atalanta
17:00 Roma - SPAL (Stöð 2 Sport 3)
19:45 Fiorentina - Inter

Serie A - karlar

#LiðLmunStig
1Lazio10+1628
2Inter10+1325
3Roma10+1824
4Como10+1023
5Milan10+921
6Frosinone10+1020
7Juventus10+317
8Napoli10+414
9Bologna10+114
10Torino10-213
11Genoa10-413
12Cagliari10-613
13Atalanta10-411
14Lecce10-109
15Parma10-78
16Fiorentina10-88
17Sassuolo10-108
18Monza10-77
19Udinese10-125
20Venezia10-143
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.