Fotbolti.net
15.12.22 - 10:18
Elvar Geir Magnússon

14 ára drengur lést þegar keyrt var yfir hann eftir sigur Frakka

14 ára drengur lést þegar keyrt var yfir hann eftir sigur Frakka
Canon

Mynd: EPA

Keyrt var yfir fjórtán ára dreng og hann lést í frönsku borginni Montpellier, skömmu eftir að Frakkland vann Marokkó í undanúrslitaleik á HM.

Drengurinn lést á sjúkrahúsi en myndir og myndskeið á samfélagsmiðlum sýna þegar atvikið átti sér stað. Franski fáninn var festur við bílinn en hópur fólks reif fánann af bílnum.

Örvænting virðist þá grípa um sig hjá bílstjóranum sem keyrir inn í tvo táninga, hann tekur beygju og gefur í. Fjórtán ára strákur varð fyrir bílnum og fór í hjartastopp.

Bifreiðin fannst yfirgefin ekki langt frá atvikinu og lögreglan leitar bílstjórans.

Það var mikil spenna milli stuðningsmanna Frakklands og Marokkó í borgum Frakklands og lögreglan þurfti að notast við táragas. Um 1,5 milljón Marokkómenn búa í Frakklandi.

Varað er við myndbandinu hér að neðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.