Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
banner
   mið 16. janúar 2019 19:13
Brynjar Ingi Erluson
Byrjunarlið Southampton og Derby: Wilson í byrjunarliðinu
Harry Wilson byrjar hjá Derby
Harry Wilson byrjar hjá Derby
Mynd: Getty Images
Southampton og Derby County eigast við í FA-bikarnum í kvöld en leikurinn fer fram á St. Mary's leikvanginum. Leikurinn hefst klukkan 19:45.

Sigurvegarinn úr þessari viðureign mætir Accrington Stanley og því mikið undir í kvöld.

Southampton hvílir nokkra leikmenn í sínu liði á meðan Frank Lampard og hans menn í Derby ætla sér stóra hluti.

Harry Wilson, einn heitasti leikmaður Derby, er að sjálfsögðu í liðinu en hann er á láni frá Liverpool.

Byrjunarlið Southampton: Gunn, Cedric, Vestergaard, Stephens, Long, Elyounoussi, Romeu (C), Ward-Prowse, Armstrong, Johnson, Ramsay.

Byrjunarlið Derby: Roos, Bogle, Keogh, Tomori, Malone, Mount, Bryson, Huddlestone, Waghorn, Wilson, Marriott.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner