Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. janúar 2019 20:08
Brynjar Ingi Erluson
Man City að kaupa eitt mesta efni Króatíu
Manchester City er að kaupa öflugan miðjumann
Manchester City er að kaupa öflugan miðjumann
Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City er að ganga frá kaupum á króatíska miðjumanninum Ante Palaversa frá Hajduk Split en hann gengur til liðs við félagið í sumar.

Palaversa er 18 ára gamall en hann er að spila sitt fyrsta tímabil með aðalliði Hajduk Split í heimalandinu.

Hann er fyrirliði U19 ára landsliðsins og þykir eitt mesta efnið í Evrópu en Manchester City er að ganga frá kaupum á leikmanninum og gengur hann til liðs við félagið í sumar.

Kaupverðið er 7 milljónir punda og verður hann á láni hjá Hajduk Split út tímabilið.

Palaversa er sagður vera með svipaðan leikstíl og Fernandinho, sem hefur spilað mikilvæga rullu hjá City.

Talið er að Manchester City gangi frá kaupunum á allra næstu dögum.
Athugasemdir
banner
banner