Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mið 16. janúar 2019 05:55
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn í dag - Real, Atletico og Sevilla í fínum málum
Madrídingar mæta Leganes.
Madrídingar mæta Leganes.
Mynd: Getty Images
Í dag eru þrír leikir í spænska Konungsbikarnum. Um er að ræða seinni leiki í 16-liða úrslitum bikarsins.

Atletico fær Girona í heimsókn eftir 1-1 jafntefli í fyrri leiknum á heimavelli Girona. Atletico er í góðri stöðu og ætti að fara áfram ef allt fer eftir bókinni.

Sevilla er í góðri stöðu fyrir seinni leik sinn gegn Athletic Bilbao. Sevilla tapaði gegn Bilbao 2-0 um liðna helgi í spænsku úrvalsdeildinni, en síðasti þegar liðin mættust í bikarnum þá vann Sevilla 3-1 útisigur og er því í góðum málum fyrir leik kvöldsins.

Real Madrid er einnig í mjög góðum málum fyrir seinni leik sinn gegn Leganes. Real féll úr leik í bikarnum gegn Leganes á síðustu leiktíð, en það ætti ekki að gerast aftur eftir að Real vann 3-0 sigur í fyrri leiknum.

Leikir dagsins:
18:30 Atletico Madrid - Girona (1-1)
19:30 Sevilla - Athletic Bilbao (3-1)
20:30 Leganes - Real Madrid (0-3)
Athugasemdir
banner
banner
banner