Magnaðir Magnamenn í Grenivík eru með pennann á lofti en þrír leikmenn hafa skrifað undir samning við félagið.
Þetta eru þeir Þorgeir Ingvarsson, Lars Óli Jessen og Viktor Már Hreiðarsson.
Þetta eru þeir Þorgeir Ingvarsson, Lars Óli Jessen og Viktor Már Hreiðarsson.
Þorgeir Ingvarsson kemur frá Fjölni en hann var á láni hjá Magna á síðasta tímabili og þekkir því til. Hann lék sjö leiki með Magna í Inkasso deildinni síðasta sumar.
Lars Óli er reynslu mikill leikmaður sem að leikið hefur með Magna síðustu fjögur tímabil. Hann á tæpa 130 meistaraflokksleiki að baki og hefur hann skorað í þeim 51 mark.
Viktor Már Hreiðarsson kemur til liðsins frá KA en hann var fyrirliði 2. flokks KA á síðasta tímabili. Hann lék einn leik með KA í Pepsideildinni síðasta sumar.
Á dögunum skrifaði síðan varnarmaðurinn Gauti Gautason undir hjá Magna en hann kom til liðsins frá Þór.
Athugasemdir