Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. febrúar 2021 22:10
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Championship: Derby unnið sex af síðustu sjö leikjum sínum
Wayne Rooney stýrir Derby County.
Wayne Rooney stýrir Derby County.
Mynd: Getty Images
Það gengur vel hjá lærisveinum Wayne Rooney í Derby County en í kvöld höfðu þeir betur gegn botnliði Wycombe Wanderers í Championship-deildinni í dag.

Derby átti í vandræðum framan af tímabili en núna undir stjórn Rooney er liðið búið að vinna sex af síðustu sjö leikjum sínum.

Derby er komið sex stigum frá fallsvæðinu og er í 16. sæti deildarinnar núna.

Watford skellti sér upp í þriðja sæti deildarinnar með 1-0 útisigri á Preston í kvöld en tvö efstu lið deildarinnar, Norwich og Brentford, voru ekki að spila í kvöld.

Hér fyrir neðan má sjá öll úrslit kvöldsins og stigatöfluna í deildinni. Það gæti tekið tíma fyrir töfluna að uppfæra sig.

Bristol City 0 - 2 Reading
0-1 Lucas Joao ('43 )
0-2 Michael Morrison ('45 )

Luton 0 - 2 Cardiff City
0-1 Harry Wilson ('53 )
0-2 Will Vaulks ('57 )

Middlesbrough 2 - 1 Huddersfield
0-1 Isaac Mbenza ('9 )
1-1 Duncan Watmore ('31 )
2-1 Ashley Fletcher ('45 , penalty goal)
Rautt spjald: Paddy McNair, Middlesbrough ('81)

Preston NE 0 - 1 Watford
0-1 Joao Pedro ('52 , penalty goal)

Wycombe Wanderers 1 - 2 Derby County
0-1Uche Ikpeazu ('16 , own goal)
1-1 Uche Ikpeazu ('49 , penalty goal)
1-2 Andre Wisdom ('90 )

Stoke City 1 - 0 Sheffield Wed
1-0 Steven Fletcher ('83 )
Athugasemdir
banner
banner