Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. febrúar 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gott fótboltakvöld fyrir LeBron James
LeBron í treyju Liverpool.
LeBron í treyju Liverpool.
Mynd: NBA
LeBron James, besti körfuboltamaður í heimi, átti þvílíkt gott fótboltakvöld á þessum þriðjudegi.

Það var leikið í Meistaradeildinni og fóru tveir leikir fram í 16-liða úrslitum keppninnar.

Liverpool fór með sigur af hólmi gegn RB Leipzig á útivelli, 0-2. LeBron lýsti yfir ánægju sinni með þau úrslit á samfélagsmiðlum. Köfuboltagoðsögnin keypti hlut í Liverpool árið 2011 og fylgist vel með því sem er í gangi hjá félaginu.

Það eru væntanlega ekki bara góð úrslit Liverpool sem gleðja LeBron í kvöld því viðskiptafélagi hans, Kylian Mbappe, skoraði þrennu fyrir Paris Saint-Germain gegn Barcelona. Þeir félagar gáfu nýverið saman út skó.

Þess má geta að dagurinn getur enn orðið betri hjá þessum magnaða íþróttamanni því lið hans, Los Angeles Lakers, á leik gegn Minnesota Timberwolves í NBA-deildinni í nótt. Sá leikur hefst klukkan eitt í nótt.



Athugasemdir
banner
banner