Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   þri 16. febrúar 2021 22:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Margir að bíða eftir því að sjá okkur tapa aftur
Mynd: Getty Images
„Þetta var leikurinn sem við vildum, leikurinn sem við þurftum," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, eftir 0-2 útisigur gegn RB Leipzig í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu.

„Leipzig getur verið algjört skrímsli, þeir eru mjög líkamlega sterkir en í kvöld stjórnuðum við þeim á ótrúlegan hátt."

„Við spiluðum mjög góðan leik og fengum úrslitin sem við áttum skilið."

„Þetta var erfiður leikur og aðeins tveir dagar á milli leikja hjá okkur. Þetta er bara fyrri leikurinn - við vitum það - en það var mikið af fólki að bíða eftir því að sjá okkur tapa aftur."

„Við vorum mjög góðir í tvö ár en höfum átt í vandræðum í ár. Það er allt í lagi. Margir voru að búast við því að við myndum klikka aftur í kvöld en strákarnir gerðu það ekki."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner