Liverpool er í ansi góðum málum gegn RB Leipzig í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Englandsmeistararnir leiða 2-0 á útivelli en það eru um 20 mínútur eftir af leiknum.
Mohamed Salah kom Liverpool yfir í seinni hálfleiknum og Sadio Mane bætti við öðru marki stuttu síðar. Bæði mörkin komu eftir slæm mistök hjá leikmönnum Leipzig.
Mark Mane var hans tuttugasta fyrir Liverpool í Evrópukeppni en hann hefur spilað fyrir félagið frá árinu 2016.
Hann er fimmti leikmaðurinn sem nær þessum áfanga en hinir eru Ian Rush, Michael Owen, áðurnefndur Salah og Steven Gerrard. Salah er kominn með 24 mörk og Gerrard er markahæstur með 41 mark.
20 - Sadio Mané has scored 20 goals in all European competitions for Liverpool, becoming only the fifth player in the club's history to reach that total. Famous. pic.twitter.com/lPwcaQ2zo0
— OptaJoe (@OptaJoe) February 16, 2021
Athugasemdir