Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 16. febrúar 2021 11:46
Elvar Geir Magnússon
Meistaradeild kvenna: Sara Björk mætir Bröndby
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Sara Björk Gunnarsdóttir.
Mynd: Getty Images
Í dag var dregið í 16-liða úrslit í Meistaradeild kvenna.

Ríkjandi meistarar í Lyon mæta danska liðinu Bröndby, Sara Björk Gunnarsdóttir landsliðsfyrirliði leikur með franska stórliðinu.

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir og stöllur hennar í Bayern München mæta BIIK-Kazygurt frá Kasakstan.

Rosengard mætir St Polten frá Austurríki en Glódís Perla Viggósdóttir spilar fyrir sænska liðið.

Leikið verður í tveggja leikja einvígi, 3.-4. og 10.-11. mars.

Wolfsburg - LSK Kvinner
Barcelona - Fortuna Hjorring
Rosengard - St Polten
BIIK-Kazygurt - Bayern München
Manchester City - Fiorentina
Sparta Pragu - Paris Saint Germain
Lyon - Bröndby
Chelsea - Atletico Madrid
Athugasemdir
banner