Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 16. febrúar 2021 21:13
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Neymar tjáir sig heima í stofu: Brandari þessi vítaspyrna
Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Neymar fylgist með leik Barcelona og Paris Saint-Germain í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar heima í stofu.

Neymar getur ekki mætt sínum gömlu félögum þar sem hann meiddist í leik gegn Caen. Óvíst er hvort að hann geti tekið þátt í seinni leiknum; það verður að koma í ljós.

Neymar tjáði sig á samfélagsmiðlum þegar Barcelona fékk vítaspyrnu í leiknum en hann var alls ekki sáttur með dóminn.

„Brandari þessi vítaspyrna," skrifaði Neymar á Twitter en hann var hinn fljótasti að eyða þessu. Hann gerði það á nokkrum sekúndum.

Lionel Messi skoraði af gríðarlegu öryggi af vítapunktinum en markið og vítadóminn má sjá með því að smella hérna.

Sjá einnig:
Messi jafnaði met með rosalega fastri vítaspyrnu


Athugasemdir
banner
banner
banner