Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. febrúar 2021 11:02
Magnús Már Einarsson
Ótrúlegur bati Pique - Í hóp í kvöld
Mynd: Getty Images
Gerard Pique, varnarmaður Barcelona, hefur óvænt verið valinn í leikmannahóp liðsins gegn PSG í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

Hinn 34 ára gamli Pique meiddist á hné í leik gegn Atletico Madrid í lok nóvember og óttast var að hann yrði frá út tímabilið.

Pique ákvað að fara ekki í aðgerð heldur nota aðrar leiðir og læknalið Barcelona hefur ekki oft séð aðra eins endurkomu.

Pique hóf æfingar af fullum krafti í síðustu viku og er í hópnum í kvöld.

Miðvörðurinn Ronald Araujo verður ekki með í kvöld og Ronald Koeman, þjálfari Barcelona, hefur ekki útilokað að henda Pique beint í byrjunarliðið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner