Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. febrúar 2021 12:30
Magnús Már Einarsson
Stuðningsmenn Ipswich trufluðu æfingu með blysum
Paul Lambert stjóri Ipswich.
Paul Lambert stjóri Ipswich.
Mynd: Getty Images
Nokkrir stuðningsmenn Ipswich trufluðu æfingu liðsins í gær með því að henda blysum inn á æfingasvæði félagsins.

Stuðningsmenn hentu 12 blysum inn á æfingasvæðið þegar leikmenn voru á æfingu að undirbúa sig fyrir leik gegn Northampton í ensku C-deildinni í kvöld.

Aðili í þjálfaraliði Ipswich fjarlægði blysin og æfingin hélt áfram eftir tíu mínútna hlé.

Ipswich er í 12. sæti í ensku C-deildinni en stuðningsmennirnir sem hentu blysunum vilja fá Paul Lambert úr stjórastólnum hjá félaginu.

Lögregla rannsakar nú málið.

Athugasemdir
banner
banner