„Þetta var mikilvægur leikur fyrir okkur, erfiður leikur og við erum mjög ánægðir," sagði Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, eftir flottan sigur á RB Leipzig í Meistaradeildinni í kvöld.
Liverpool er í frábærum málum upp á það að komast í 8-liða úrslit þar sem þeir voru á útivelli í kvöld.
Liverpool er í frábærum málum upp á það að komast í 8-liða úrslit þar sem þeir voru á útivelli í kvöld.
„Frá byrjun til enda þá pressuðum við mjög vel og vorum fljótir að vinna boltann aftur. Góður sigur en þetta er enn bara hálfklárað verk," sagði Henderson sem hefur þurft að spila að mestu í miðverði á tímabilinu.
„Við héldum alltaf áfram og vorum verðlaunaðir með mörkunum. Við verðum að vera ánægðir með þetta."
Seinni leikur liðanna fer fram 10. mars á Anfield.
Athugasemdir