Alfreð Finnbogason er í byrjunarliði Augsburg sem er að spila við Hannover 96 þessa stundina. Leikurinn var að hefjast.
Alfreð hefur ekkert spilað með Augsburg undanfarnar vikur vegna meiðsla en hann er núna mættur aftur sem eru mjög góð tíðindi, sérstaklega fyrir íslenska landsliðið.
Alfreð er í íslenska landsliðshópnum sem mætir Andorra og Frakklandi 22. og 25. mars. Leikirnir eru í undankeppni EM. Ísland þarf klárlega á Alfreð að halda í þessum leikjum.
Augsburg þarf líka á honum að halda þar sem liðið er í baráttu um að halda sæti sínu í þýsku úrvalsdeildinni.
FinnTORgason is back! 🙌 Viel Erfolg, Jungs! ✊ #FCAH96 #matchday pic.twitter.com/lCugowNwa0
— FC Augsburg (@FCAugsburg) March 16, 2019
Athugasemdir