Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 16. mars 2019 11:40
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ísland í úrslitaleikinn á Special Olympics World Games
Andri Jónsson, fyrirliðinn í dag.
Andri Jónsson, fyrirliðinn í dag.
Mynd: KSÍ
Ísland vann í dag 3-0 sigur gegn Írlandi á Special Olympics World Games. Mótið í ár er haldið í Abú Dabí.

Guðmundur Hafliðason skoraði tvö mörk fyrir Ísland í dag og Gabriel Óskar Halldórsson var með eitt.

Andri Jónsson var fyrirliði í dag og fagnar í leiðinni 31 árs afmæli sínu! Til hamingju með daginn!

Ísland vann í gær 3-2 sigur gegn Arúba í gær þar sem Guðmundur Hafliðason skoraði þrennu. Eftir sigurinn á Írlandi er það ljóst að Ísland spilar í úrslitaleiknum á þriðjudag þrátt fyrir að liðið eigi einn leik eftir í riðlakeppninni.

Liðið fær frí á morgun áður en það mætir Eistlandi á mánudaginn klukkan 10:30.


Athugasemdir
banner
banner
banner