Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 16. mars 2019 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ronaldo bestur og Mane með besta markið
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo og Sadio Mane fengu verðlaun fyrir frammistöðu sína í Meistaradeildinni í vikunni.

Ronaldo var valinn leikmaður vikunnar en hann sá til þess að Juventus komst áfram í 16-liða úrslitin. Eftir 2-0 tap í fyrri leiknum gegn Atletico kom Juventus til baka og vann 3-0 á heimavelli. Ronaldo skoraði þrennu.

Hann er mjög verðskuldað leikmaður vikunnar.

Mark vikunnar átti hins vegar Sadio Mane. Hann skoraði tvennu í 3-1 sigrinum gegn Bayern, en fyrra markið varð fyrir valinu.

Í valinu á marki vikunnar var Dusan Tadic í öðru sæti, Lionel Messi í þriðja sæti og Lasse Schöne í fjórða sæti.





Athugasemdir
banner
banner
banner