Leganes 0 - 2 Girona
0-1 Cristian Portu ('13)
0-2 Cristian Portu ('22)
0-1 Cristian Portu ('13)
0-2 Cristian Portu ('22)
Cristian Portu skoraði bæði mörkin er Girona vann útileik gegn Leganes í spænsku deildinni í kvöld.
Bæði mörkin frá Portu komu eftir mistök í varnarlínu heimamanna í fyrri hálfleik.
Heimamenn reyndu að minnka muninn í seinni hálfleik án árangurs þar sem gestirnir voru fastir fyrir og gáfu ekki opin færi.
Liðin eru á svipuðu róli um miðja deild, átta stigum frá fallsvæðinu og sjö stigum frá Evrópu.
Athugasemdir