Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. mars 2020 16:30
Magnús Már Einarsson
Amazon myndar áfram hjá Tottenham þrátt fyrir kórónaveiruna
Mynd: Getty Images
Amazon hefur í vetur fylgst með bakvið tjöldin hjá Tottenham en von er á heimildarþáttum um þetta tímabil hjá félaginu.

Óhætt er að segja að ýmislegt hafi gengið á hjá Tottenham í vetur og áhugavert verður að sjá þættina þegar þeir koma út.

Amazon fylgdist með því þegar Mauricio Pochettino var rekinn og Jose Mourinho var ráðinn sem og því þegar Eric Dier rauk upp í stúku til að rífast við áhorfanda á dögunum.

Núna fylgjast myndavélar Amazon síðan með því þegar kórónaveiran setur stórt strik í reikninginn á þessu tímabili.

Amazon hefur fylgst með gangi mála á æfingasvæði Tottenham undanfarna daga en flestar myndavélarnar eru fjarstýrðar og því þarf ekki að hafa menn á svæðinu til að stýra þeim. Því hefur Tottenham gefið grænt ljós á að mynda áfram á æfingasvæðinu á meðan veiran gengur yfir.
Athugasemdir
banner
banner