Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 16. mars 2020 13:29
Elvar Geir Magnússon
Chelsea gefur Mount áminningu
Mason Mount fór út að leika.
Mason Mount fór út að leika.
Mynd: Twitter
Chelsea hefur minnt Mason Mount á skyldur sínar eftir að hann fór úr sóttkví og lék sér í fótbolta.

Callum Hudson-Odoi, leikmaður Chelsea, greindist með kórónaveiruna í síðustu viku og allur leikmannahópurinn á að vera í sóttkví.

Enginn annar frá Chelsea hefur fengið einkenni og Hudson-Odoi sagði frá því á föstudag að hann væri á góðum batavegi.

Það vakti athygli viðstaddra að sjá Mount úti að leika sér í fótbolta með vinum sínum enda fjölmiðlar mikið fjallað um að Chelsea sé í sóttkví.

Chelsea hefur nú skammað Mount og búast má einnig við því að félagið sekti hann.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner