Barcelona er í áframhaldandi viðræðum við markvörðinn Marc-Andre Ter Stegen um samning til 2024.
Núgildandi samningur hans er til sumarsins 2022.
Núgildandi samningur hans er til sumarsins 2022.
Ter Stegen, sem er 27 ára, hefur sýnt og sannað að hann er einn besti markvörður heims. Hann kom til Börsunga frá Borussia Mönchengladbach sumarið 2014.
Hann lék sinn 200. leik fyrir félagið gegn Sevilla í október og er algjör lykilmaður. Hann hefur sýnt mikinn stöðugleika.
Athugasemdir