16.03.25 - 15:05
Brynjar Ingi Erluson
Championship: Fyrrum vonarstjarna Liverpool með sigurmarkið í slagnum um Sheffield

Rhian Brewster kom Sheffield United upp að hlið Leeds

Mynd: EPA

Sheffield Wed 0 - 1 Sheffield Utd
0-1 Rhian Brewster ('64 )
0-1 Rhian Brewster ('64 )
Sheffield United vann 1-0 sigur á nágrönnum sínum í Sheffield Wednesday á Hillsborough-leikvanginum í ensku B-deildinni í dag.
United er í harðri toppbaráttu við Leeds og Burnley um efstu tvö sætin í deildinni á meðan Wednesday er að halda í vonina um að komast í umspil.
Það voru heimamenn sem voru ferskari til að byrja með. Michael Smith átti besta færi fyrri hálfleiksins er hann stangaði boltann í átt að marki en Michael Cooper, markvörður United, varði frábærlega og snemma í síðari hálfleik var Dean Windass nálægt því að skora en Harrison Burrows komst fyrir skotið í tæka tíð.
Sex mínútum síðar skoraði Rhian Brewster, sem var áður á mála hjá Liverpool, sigurmarkið af stuttu færi.
Brewster var talinn gríðarlega efnilegur hér árum áður og spáð miklum frama, en hann náði aldrei að brjóta sér leið inn í byrjunarlið Liverpool og var á endanum seldur til Sheffield United fyrir 20 milljónir punda árið 2020.
Þetta sigurmark var dýrmætt en það kom Sheffield United upp að hlið Leeds á toppnum þegar átta umferðir eru eftir. Bæði lið eru með 80 stig og kemur Burnley rétt á eftir með 78 stig.

Championship - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Birmingham | 15 | +14 | 29 |
| 2 | Middlesbrough | 15 | +11 | 29 |
| 3 | Stoke City | 15 | +6 | 29 |
| 4 | Wolves | 15 | +8 | 28 |
| 5 | West Brom | 15 | +8 | 28 |
| 6 | Swansea | 15 | +4 | 26 |
| 7 | Southampton | 15 | +14 | 24 |
| 8 | QPR | 15 | +6 | 24 |
| 9 | West Ham | 15 | +14 | 23 |
| 10 | Sheffield Utd | 15 | +2 | 22 |
| 11 | Portsmouth | 15 | +2 | 22 |
| 12 | Norwich | 15 | +8 | 21 |
| 13 | Blackburn | 15 | -1 | 21 |
| 14 | Cardiff City | 15 | 0 | 18 |
| 15 | Wrexham | 15 | -2 | 18 |
| 16 | Millwall | 15 | -4 | 18 |
| 17 | Bristol City | 15 | -8 | 18 |
| 18 | Bolton | 15 | -9 | 17 |
| 19 | Charlton Athletic | 15 | -10 | 17 |
| 20 | Watford | 15 | -10 | 15 |
| 21 | Lincoln City | 15 | -11 | 15 |
| 22 | Burnley | 15 | -9 | 10 |
| 23 | Derby County | 15 | -16 | 10 |
| 24 | Preston NE | 15 | -17 | 8 |