mán 16. apríl 2018 06:00
Gunnar Logi Gylfason
Batshuyai gæti verið alvarlega meiddur
Mynd: Getty Images
Peter Stoger, stjóri Borussia Dortmund, segir að belgíski framherjinn Michy Batshuayi gæti verið alvarlega meiddur.

Batshuayi fór af spítalanum á hækjum en Stoger sagði að honum væri mjög illt.

Ef meiðslin eru alvarleg eru það mjög slæmar fréttir fyrir Dortmund en Belginn hefur skorað sjö mörk fyrir þá gulklæddu síðan hann kom á láni frá Chelsea í janúar.

Dortmund tapaði gegn Schalke, í fyrsta skipti síðan 2014, og er því fjórum stigum á eftir þeim en Schalke komst með sigrinum í 2.sæti deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner