Dejan Lovren, varnarmaður Liverpool, verður ekki með í seinni leiknum gegn Porto á morgun. Liverpool vann 2-0 sigur í fyrri leiknum á Anfield og ætti að klára verkefnið á Drekavöllum á morgun.
Króatíski varnarmaðurinn lék í fyrri leiknum en það var hans fyrsti leikur í þrjá mánuði, eftir meiðsli aftan í læri. Hann var svo á bekknum í sigrinum gegn Chelsea um síðustu helgi.
Lovren hefur aðeins spilað þrettán byrjunarliðsleiki á tímabilinu en hann gat ekki æft í morgun.

Það má búast við því að Joel Matip verði aftur við hlið Virgil van Dijk í hjarta varnarinnar.
Alex Oxlade-Chamberlain gat heldur ekki tekið þátt í æfingunni á Melwood æfingasvæðinu. Enski miðjumaðurinn hefur verið að æfa að undanförnu en þjálfarateymi Liverpool passar að hann komi rólega aftur inn í hlutina eftir alvarleg hnémeiðsli sem hann hlaut fyrir ári síðan.
Liverpool er í baráttu um að vinna bæði ensku úrvalsdeildina og Meistaradeildina.
Athugasemdir