þri 16. apríl 2019 22:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
„Hann varði líka frábærlega"
Mynd: Getty Images
David de Gea, markvörður Manchester United, gerði slæm mistök þegar Manchester United tapaði 3-0 gegn Barcelona í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld.

United er úr leik í keppninni, tapaði einvíginu við Barcelona samanlagt 4-0.

Annað mark Börsunga kom eftir mistök De Gea. Það má sjá hérna.

Ole Gunnar Solskjær, stjóri Manchester United, var spurður út í mistökin eftir leik.

„Það er óheppilegt með markverði. Þegar þú gerir mistök þá gleymast þau yfirleitt ekki. En hann varði líka frábærlega. Framlag hans til liðsins var gott, en stundum gerast svona hlutir í fótbolta."
Athugasemdir
banner
banner
banner