Barcelona komst áfram í undanúrslit Meistaradeildarinnar með öruggum 3-0 sigri á Manchester United í kvöld.
Lionel Messi sýndi gæði sín í leiknum og skoraði tvennu. Mörkin komu með stuttu millibili um miðjan fyrri hálfleikinn. Messi refsaði leikmönnum United fyrir mistök sín.
Lionel Messi sýndi gæði sín í leiknum og skoraði tvennu. Mörkin komu með stuttu millibili um miðjan fyrri hálfleikinn. Messi refsaði leikmönnum United fyrir mistök sín.
Undir lok fyrri hálfleiksins hefði Barcelona endanlega getað gert út um einvígið eftir frábæra sókn. Messi lék sér þá að Phil Jones, varnarmanni United.
Smelltu hér til að sjá mögnuð tilþrif Messi.
Í seinni hálfleiknum skoraði Philippe Coutinho þriðja markið og þar við sat. Barcelona vann 3-0 og 4-0 samanlagt. Mótherji Barcelona í undanúrslitunum verður annað hvort Liverpool eða Porto.
Athugasemdir