Á morgun klukkan 16:30 mætast Chelsea og Manchester City í undanúrslitum FA-bikarsins.
Sigurliðið mun leika við Southampton eða Leicester í úrslitaleik keppninnar.
Króatíski miðjumaðurinn Mateo Kovacic verður ekki með Chelsea í leiknum en hann meiddist aftan í læri á æfingu. Þá er varnarmaðurinn Andreas Christensen einnig á meiðslalista Chelsea.
Sergio Aguero hefur verið fjarri góðu gamni í tveimur síðustu leikjum Manchester City og verður einnig fjarverandi á morgun. Hann er að glíma við meiðsli í kálfa.

Chelsea hefur þrisvar spilað gegn Manchester City á nýja Wembley en aldrei náð að fagna sigri.
Athugasemdir