Oli McBurnie, leikmaður botnliðs Sheffield United, er meiddur á fæti og mun missa síðustu leikjum þessa tímabils.
McBurnie í 3-0 tapinu gegn Arsenal um síðustu helgi. Þá meiddist einnig fyrirliðinn Billy Sharp og hann verður sömuleiðis ekki meira með á þessu tímabili.
Paul Heckingbottom, sem er tímabundið þjálfari Sheffield United, sagði frá þessum fregnum í dag og ljóst að Sheffield mátti ekkert við því að missa tvo sóknarmenn í meiðsli.
Billy Sharp þurfti að fara í aðgerð en Heckingbottom vonast eftir því að hann verði klár þegar undirbúningstímabilið fer í gang.
Sheffield United hefur gengið ömurlega á þessu tímabili og hefur félagið verið í botnsætinu í allan vetur. Stutt er í það að Sheffield verði endanlega fallið í Championship deildina.
Athugasemdir