Keppni í Mjólkurbikar karla hefst næstkomandi föstudag en þá eru fjórtán leikir á dagskrá.
Fyrsta umferðin átti að hefjast 8. apríl síðastliðinn en var frestað vegna sóttvarnarreglna.
Leikirnir í fyrstu umferðinni fara fram 23-26. apríl og helgina eftir er leikið í 2. umferðinni.
32-liða úrslitin fara fram í júní en þá koma liðin í Pepsi Max-deildinni inn í keppnina.
Keppni í Mjólkurbikar kvenna hefst mánudaginn 26. apríl eins og áætlað hafði verið.
Smelltu hér til að sjá leikjaplanið í Mjólkurbikar karla
Smelltu hér til að sjá leikjaplanið í Mjólkurbikar kvenna
Athugasemdir