mið 16. maí 2018 09:30
Elvar Geir Magnússon
Skellti í lás á stuðningsmenn Man City
Frá sigurgleði Manchester City.
Frá sigurgleði Manchester City.
Mynd: Getty Images
The Old Nags Head, bar í hjarta Manchester, var með lokað á mánudaginn þegar Manchester City fagnaði Englandsmeistaratitli sínum með skrúðgöngu og glensi ásamt aðdáendum.

Sean Brett, eigandi barsins, er harður stuðningsmaður Manchester United og var ákveðinn í því að þjónusta ekki erkifjendurna á þessum degi.

Pirraðir stuðningsmenn City ákváðu að svara til baka með því að gefa barnum neikvæða dóma á hinni vinsælu TripAdvisor síðu.

Einn skrifaði umsögn þar sem hann sagði að barinn væri aðeins sóttur af ógæfufólki.

Það er ljóst að The Old Nags Head verður galopinn á laugardaginn þegar Manchester United mætir Chelsea í bikarúrslitaleiknum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner