Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   fim 16. maí 2019 21:47
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Hermann Ágúst: Var ekki að fara að lúðra honum í skeytin
Hermann Ágúst Björnsson.
Hermann Ágúst Björnsson.
Mynd: Arnar Daði - Fótbolti.net
Hermann Ágúst í leik með Þrótti fyrir nokkrum árum.
Hermann Ágúst í leik með Þrótti fyrir nokkrum árum.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hermann Ágúst Björnsson kom inn á sem varamaður í kvöld þegar Grindavík vann óvæntan 2-1 sigur á KR í Pepsi Max-deildinni í kvöld.

Lestu um leikinn: Grindavík 2 -  1 KR

Þetta var hans fyrsti leikur í efstu deild. Hann var hættur í fótbolta en í fyrra lék hann með ÍH í 4. deildinni. Hann fékk að koma í Grindavík fyrir sumarið.

„Í rauninni var kominn tími að taka sigur hér heima. Ég er ánægður að taka þátt í því," sagði Hermann Ágúst eftir leikinn.

„Það var ungur og efnilegur Hafnfirðingur sem kom inn á og sigldi þessu heim. Nei, þetta var geggjaður leikur og skipulagðið gekk upp. Túfa er fótboltaheili og leggur upp ákveðna taktík sem gekk upp í dag og skilaði þessum punktum."

„Það var í raun frekar ólýsanlegt," sagði Hermann um fyrsta leikinn í efstu deild. „Ég var hættur þessu og þetta var ekki í myndinni fyrir hálfu ári eða svo."

„Það er búið að vera mikið áreiti í kringum mann hvort maður sé ekki að fara að fá mínútur fyrst maður er í þessu. Ég treysti Túfa ágætlega fyrir þessu og ég er ekki að fara að segja honum fyrir verkum nema í þágu fantasy-liðsins míns sem hefur ekki verið að ríða feitum hesti í fyrstu umferðunum. Það gerir það héðan frá."

„Það er vitað mál að ég er ekki að fara að skæra hann fram hjá þremur og fjórum og lúðra honum í skeytin, ekki fyrr en það líður aðeins á tímabilið. Ég átti að koma inn á og djöflast aðeins."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner